Jæja þá er bara skólasetning
á morgun! já ég verð nú að viðurkenna að það er komin smá
tilhlökkun að hitta krakkana aftur! Suma hefur maður ekki séð í
allt sumar! Ég er búin að kaupa allar skólabækur nema "carte
blanche" sem virðist bara ekki vera komin í búðir, allavega er
ég búin að fara í nokkuð margar og finn hana hvergi.. Var búin
að ákveða að fara í dag að kaupa stílabækur og allt þetta dót en
það varð ekkert úr því þar sem ég vaknaði ekki fyrr en klukkan
fjögur og þarf að mæta í vinnuna um sjö leytið þannig ég kíki
bara á morgun eftir setninguna
Annars ligg ég bara ennþá uppí rúmi. Um að
gera að nýta síðasta daginn til að sofa út og liggja í leti
Reyndar þarf ég að fara að hugsa um þetta blessaða ökupróf sem ég
átti að vera komin með í byrjun ágúst en var bara svo löt við að
taka, úps!
Og svo er ökukennarinn minn að fara í frí þannig ég er
ekkert viss um að ég fái þetta eitthvað strax
En ég get nú ekki
kennt neinum um það nema bara sjálfri mér
Mamma var að hringja í mig til að segja mér að hún og
bræður mínir væru í Hveragerði (kemur á óvart eða hitt þó
heldur, við erum ekki flutt inn en samt finnst mér hún alltaf vera
þarna!) að skoða grunnskólann þar á bæ sem þeir byrja svo í á
morgun. En annars fáum við sennilega húsið um miðjan september eða
fólkið sagðist sennilega vera farið út þá. Annars kom par að skoða
íbúðina okkar á morgun en veit hins vegar ekkert hvernig þeim leist
á.
En nú
er ég farin að glugga í Akstur og Umferð-almennt ökunám. Við
sjáumst svo á morgun sætu möndlurnar mínar!!
-----Kristjana
Björk-----